isi i london
Take it

Give it, take it, pay it and sell it

::. fimmtudagur, desember 01, 2005 .::
KAFFI

Kaffið er sá hlutur sem kemur mér í gegnum daginn, Rótsterkt og engin mjólk er málið, Minnir mig á tímana þegar ég vann hjá Loftorku einn vetur. Ég var ekki búinn að vinna í 3 mánuði þannig að ég hafði ekki unnið mér inn kuldagalla, þeir voru nú samt svo almennilegir að ég gat keypt mér hann sem kostaði að mig minnir um 15000 kall. Í snjókomu og hríð fastur á Hellu að leggja plan við kjúklingabúið, tærnar blautar eftir að hafa gengið í snjónum frá 7 að morgni. Klukkan er 15:30 kaffitími, rótsterkt og engin mjólk var hápunktur dagsins, ég hugsað jæja síðasta pása þanga til ég fer heim, ekki nema 4 tímar eftir Ég þakka Loftorku fyrir þessar frábæru minningar. Já á meðan ég man þá borguðu þeir mér 414 kr á klukkustundina, þannig fyrir 12 tíma vinnudag fékk um 6000 kr með yfirvinnunni. Eftir þessa miklu lífreynslu þá hef ég komist af því að kaffið er betra en morgunkorn, ætla að finna upp morgunkorn sem þú blandar með kaffi og er rosalega gott á bragðið.

:: Isleifur 10:06 AM
[link] ::
:: comment ::
top
::. miðvikudagur, nóvember 23, 2005 .::
Dreifarar!!!!!!!!!!!
(ekki neikvæð meining)
Quote úr bloggfærslum frá fólki úti á landi.
Þessi dama kemur frá Hvammstanga.
Nú ætla ég að fara í einu búðina á Hvammstanga (gott fyrir þá sem eru með valkvíða) og kaupa það sem til vantar í huggulega kvöldmáltíð í sveitasælunni :)
Við erum nú annars bara eiturhress hér í Bugðulæknum :)Nú þýðir ekkert að slá slöku við, tíminn líður hratt á gervihnattaöld.
þetta kemur frá vinahóp af vestan.
Hey there ...Jæja, þá er ég komin aftur suður og váá hvað það er gott að vera komin aftur heim. Get ekki hugsað mér að þurfa einhvern tíman að flytja aftur vestur (kæmi ekki til greina). En það var samt mjög fínt að heimsækja mömmu
Þessi er nú ekki á sama máli!
Það er alltaf jafn frábært að keyra út úr göngunum og syngja; það er yndælt á sumrin við Önundarfjörð. Jafnvel þótt það sé allt á kafi í fallegum jólasnjó. Ég elska þessa litlu fallegu eyri!


:: Isleifur 10:13 AM
[link] ::
:: comment ::
top
::. fimmtudagur, nóvember 17, 2005 .::
3 ára hætti ég að pissa á mig

80 ára ætla ég byrja á því aftur.

:: Isleifur 8:46 PM
[link] ::
:: comment ::
top
Quality Tv

Það var að byrja ný þáttaröð sem heitir 'family forensics' og byggist á því að fjölskyldan fer í frí og á meðan fer CSI lið inn og skoða allar þeirra eigur,
Fjöldskyldan í dag fór til London og voru þau látin vita um nokkra hluti sem var búið að finna í íbúðinni, eins og kanabis efni hjá stráknum, hann í keng og lýtur út eins og asni, þá heyrist í mömmunni segja 'you told me you were burning insects' það meira sem fannst var dótasafn foreldrana, klámblöð, internet-klám, loftbyssa, notaður smokkur, sæði í sófanum, glerpípa etc.

verð að segja quality stöff

annars allt gott að frétta.

Later


:: Isleifur 12:18 AM
[link] ::
:: comment ::
top
::. miðvikudagur, nóvember 16, 2005 .::
já þetta er svaka græja

check it out

:: Isleifur 1:04 PM
[link] ::
:: comment ::
top
::. mánudagur, ágúst 29, 2005 .::


:: Isleifur 2:49 PM
[link] ::
:: comment ::
top
::. miðvikudagur, febrúar 23, 2005 .::


Snjóar í London og öllum finnst það æðislegt. púff. Fórum um daginn á skemmtistað sem var nú það vel hannaður að Guffi færi ekkert þaðan kl:3:00. Hann heitir Marathon og er bæði kebab staður og svo lengra inni eru tveir saxafón og klarinett leikarar að spila góða mjög góða tónlist, svo verður maður svangur þá ferðu bara á barinn og færð þér að éta. Snilld.

Maria vinkona mín frá Noregi er komin til London og hitti hana á eftir. Ég kynntist Mariu í CISV í Mexiko 1993 svo tveimur árum seinna hitti ég hana aftur í DK, en ekki séð hana svo í áratug.

Ég á afmæli í dag, 24 ára and feelling a little bit old en jú jú það styttist í það að maður kaupir sér golfbíl og hættir að vinna (kannski betra að byrja vinna áður en maður talar um að hætta)
Jú jú ég man þá tíð er ég sá Curly Sue 1991 í bíóborginni (eina skiptið sem fjölskyldan hefur farið saman í bíó), Ég man þá tíð að ég sá rainman 1988 fyrir 17 árum, ég man þá tíð er Kringlan opnaði í nýja miðbænum, ég man þá tíð þegar ég fékk commador tölvuna mína sem geymdi gögnin á segulbandspólum og ég man eftir Larry 1 og orðum eins og " what´s the password? Ken sent me"
Auðvitað er ykkur boðið í kökur og mjólk í dag og tek á móti gestum milli 15:00 og 16:00

Bið að heilsa Ísleifur 24 ára karlmaður

:: Isleifur 10:11 AM
[link] ::
:: comment ::
top
::. fimmtudagur, febrúar 03, 2005 .::
Já það er sko gott í útlöndum

já fólk það er orðið langt um liðið síðan ég settist hér fyrir framan tölvuskjáinn og gaf af mér fréttir.

Hér er "sko" allt gott að frétta og það má segja að það byrjaði að vora í dag sem þýðir fyrir mig þá er það T-shirt (sem ég er nú ekki vanur að ganga í) og peysa.

Köben: SNILLD
Þakka Hauki og Styrmi fyrir gistingu og svo H.P. fyrir gott "party" sem ég var þar þó ekki mesta "party"-ljónið, þar sem Helgi veitti vel.
Sá svo sem ekki mikið af Köben vegna slappleika á daginn. en skemmti mér mjög vel. Takk fyrir mig

Dagskráin fram í Maí er góð.
2 próf (svona minna mig á það að námið er í forgang)
11. mars er það Gautaborg með kórnum á Kóramót/Bjóramót
23.apr. Þá er það Faro í gólf að hitta mömmu og pabba og vera yfir helgi. Svona til að fá stuttbuxnafar.
13.maí Þá er það Köben aftur (fjölskyldu leyndarmál sem ekki má upplýsa).
28.maí Þá er það Ísland. Mín ástkæra systir hefur tekið við bónorði og ákveðið að gifta sig. Til hamingju Rúnar og siz.

Þessari útrás minni vill ég þakka ódýrum flugum og Lín, til að mynda þá kostar flug til Faro eins og leigubíll úr miðbæ til Hafnafjarðar. Sweet.

Böbbi takk fyrir að reyna að redda miðum á stórleik en ég er nokkuð viss um að þetta sé ekki sá síðasti í boltanum.

Ég hef tekið eftir minni commentum á blogsíðum. Ætli það sé einhver tenging á milli þess og skammdegisþunglyndis, fáum sálfræðideildina til að svara því.

Cheers Ísi




:: Isleifur 9:30 PM
[link] ::
:: comment ::
top

[::..Hitt & þetta..::]
:: Ýtið á þennann hnapp ef þið viljið fá linkana uppí öðrum glugga::
[::..Fólk..::]
Gummi Jóh
Guffsterinn
Biggi
Kari
Villinn
Siggi P
Gunni
Gussa
Gunni DK
Andri DK
Sindri
Haukur
Aglan
Hrefna
[::..Staðir..::]
Hérna getið þið skoðað Hverfisbarinn
Hér er Vegamót
[::..Annað..::]
Íslensk síða um fallhlífarstökk
Góður ljósmyndari
Vinnan hennar mommu
Hljóðskólinn í London